Sveitarfélagið Ölfus og Íslenskar Fasteignir ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um
fyrirhugaðar framkvæmdir við hótel og afþreyingarmiðstöð í Hafnarvík við Leirur í
Þorlákshöfn. Skv samkomulaginu mun Ölfus úthluta Íslenskum Fasteignum lóð fyrir
uppbyggingu fyrir allt að 180 herbergja hótel og afþreyingarmiðstöð auk smáhýsa. Stefnt er að því að hótelið verði hannað og starfrækt í nánu samstarfi við nærliggjandi golfvöll
samkvæmt nánara samkomulagi við Golfklúbb Þorlákshafnar.

Íslenskar Fasteignir munu annast undirbúningsrannsóknir og gerð skipulagstillagna fyrir
verkefnið í nánu samráði við sveitarfélagið Ölfus og með hliðsjón af markmiðum og
ákvæðum Aðalskipulags Ölfuss.

Stefnt er að því að framkvæmdir við uppbyggingu hótels geti hafist í lok næsta árs og að
opnun þess geti orðið vorið 2026.

„Við eins og aðrir þekkjum þá miklu uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Ölfusinu, og þá
ekki síst Þorlákshöfn. Við höfum kynnt okkur vandlega þessi áform og höfum mikla trú á
framtíð þessa svæðis. Hér eru allar forsendur til að staðsetja hótel og afþreygingarmiðstöð
eins og áform okkar standa til, með golfvöllinn, Bláfjöllin og víðernið við andyrið og sjálft
Atlantshafið og þessa mögnuðu fjöru í bakgarðinum. Samstarfið við Sveitarfélagið hefur
verið til mikilla fyrirmynda. Kraftur þeirra og stórhugur er hreinlega smitandi og við stefnum að víðtæku samstarfi“.
Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri hjá Íslenskum Fasteignum.

„Það er stórt skref fyrir okkur og í raun viðurkenning að fá sterkt félag eins og Íslenskar
Fasteignir til samstarfs um verkefni sem þetta. Við heimamenn vitum vel að hér eru mikil
tækifæri en það er ekki sjálfgefið að fjárfestar og frumkvöðlar hafi þessa sömu sýn. Þau
áform sem nú hafa verið undirrituð munu setja Þorlákshöfn á kortið í ferðaþjónustu svo um
munar. Þegar það fer saman með uppbyggingu á nýjum miðbæ, stækkun hafnarinnar,
fjölgun íbúa og fjölþættum umhverfisvænum áformum svo sem laxeldi á landi þá verður
flestum ljóst að það er vöxtur framundan. Von okkar er því að Íslenskar Fasteignir horfi til
áframhaldandi þátttöku hér.“
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi