Þau eru stór hjörtun á Dala-Rafn VE, en áhöfnin er að hefja sölu á dagatali til styrktar Krabbavörnum í Vestmannaeyjum. Að sögn Jóels Þórs, var áhöfnin á heimstími og kom þá upp sú hugmynd að gera það sama og slökkvilið víðs vegar hafa gert, að búa til dagatöl með “sexy” myndum af áhafnarmeðlimum og selja þau til styrktar góðs málefnis. Hver króna af sölunni rennur beint til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum, en áhöfnin kostaði sjálf útgáfuna úr starfsmannasjóði sínum.
Eingöngu 100 stk. voru prentuð og hvetjum við alla til að stykja gott málefni með kaupum á dagatalinu.
Til að kaupa eintak er hægt að hafa samband við Jóel í síma 864-3697 eða senda tölvupóst á [email protected]. Einungis 5.000 kr stykkið.
Af vef Ísfélagsins.