Í kvöld kom upp rafmagsbilun í annarri skrúfu Herjólfs, viðgerðir eru hafnar og koma þær til með að standa fram eftir nóttu. Fram kemur í tilkynninigu frá Herjólfi að óvissa sé með siglingar í fyrramálið. “Við komum til með að gefa frá okkur frekari tilkynningu kl. 06:00 í fyrramálið og upplýsa farþega okkar um framgang mála.”
Fyrr í kvöld var það gefið út að síðasta ferð kvöldsins frá Vestmannaeyjum kl. 22:00 og frá Landeyjahöfn kl. 23:15 félli niður vegna tæknilegar bilunar.