ÍBV stelpur mæta Valskonum á morgun í bikarúrslitum í Laugardalshöll. Ísfélagið og Herjólfur ætla í sameiningu að sjá til þess að Eyamenn fylli Höllina á morgun. Ísfélagið býður frítt í rútur fyrir stuðningsmenn ÍBV og þeir sem bóka sig í rútuna fá sömuleiðis fría Herjólfsmiða!
Farið frá Eyjum kl.09:30 á morgun og svo heim með 18:15 ferðinni.
Mikilvægt að fólk skrái sig á formið hér fyrir neðan, til að tryggja sér sæti í rútuna! Þeir sem þegar höfðu skráð sig þurfa EKKI að skrá sig aftur!