Einn leikur fer fram í Olísdeild karla í kvöld þegar ÍR fær ÍBV í heimsókn. Þau eru mikilvæg stigin sem eru í boði í dag því ÍR situr í 11. og næst neðsta sæti deildarinnar og berst fyrir lífi sínu í deildinni. ÍBV getur með sigri komist upp að hlið FH í öðru sæti deildarinnar. Leikurinn hefst kl. 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.