Í grein sem birtist í 6.tbl Eyjafrétta um Foreldramorgna Landakirkju var farið vitlaust með nafn Kvenfélags Landakirkju og var í staðinn sett Kvenfélagið Líkn. Biðjumst velvirðingar á þessu og birtum hér greinina leiðrétta í heild sinni.

Foreldramorgnar í Landakirkju hafa verið fastur liður í starfi kirkjunnar í mörg ár. Í október 2021 hófu þeir aftur göngu sína eftir pásu og hafa verið fastur liður síðan. Prestar Landakirkju eru afskaplega ánægðir með að þetta starf hafi vaxið með þessum hætti og vonast til að það haldi áfram. Í gegnum árin hefur það tíðkast að foreldri haldi utan um starfið. Heba Dögg Jónsdóttir hefur umsjón með starfinu í dag og þegar hennar orlofi lýkur tekur einhver við keflinu af henni.

Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga frá 10 til 12 í Safnaðarheimili Landakirkju. Morgnarnir eru opnir öllum foreldrum ungra barna og verðandi foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir. Kvenfélag Landakirkju býður upp á kaffi og léttar veitingar. Af og til er boðið upp á fræðslu sem viðkemur börnum og foreldrahlutverkinu og telji einhver sig hafa eitthvað fram að færa er honum velkomið að hafa samband.

Blaðamaður Eyjafrétta kíkti á foreldramorgun og spjallaði við nokkrar mæður sem eru duglegar að sækja morgnana. Þær voru sammála um að þessi tími sé ótrúlega gefandi að svo mörgu leyti. Þeim þykir gott að geta skipst á góðum ráðum og spjalla við foreldra sem eru á sama stað og þær sjálfar. „Það er svo dýrmætt að koma og sjá að allir eru að kljást við allskonar atriði og finna að maður er ekki einn í þessu. Einnig er þetta frábær tími fyrir börnin að eiga í félagslegum samskiptum við aðra áður en þau fara í leikskóla,“ segir Heba sem að lokum vill hvetja þá sem hafa áhuga á að koma og láta aðra vita af starfseminni. „Það er svo gaman að sjá ný andlit.“