Stórskipakantur, athuganir og rannsóknir voru til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarráðs í vikunni sem leið. Hafnarstjóri fór yfir verklag starfshóps fyrir Vestmannaeyjahöfn sem mun skila niðurstöðum í byrjun júní 2023. Starfshópur styðst við skýrslu EFLU.

Fram kemur í niðrstöðu ráðsins að í skýrslunni er að finna margar og fjölbreyttar hugmyndir um framtíðarsýn hafnarsvæðisins í Vestmannaeyjum. Hægt er að senda hafnarstjóra ([email protected]) ábendingar um fleiri tillögur eða aðrar athugasemdir ef einhverjar eru. Slíkar ábendingar skal senda fyrir 5. maí nk.

Í skýrslunni eru dregnar saman hugmyndir sem orðið hafa til á undanförnum árum og hefur starfshópur sem skipaður var sérstaklega til þess að taka fyrir framtíðarsýnina, unnið úr umræddum hugmyndum. Ráðið vekur athygli á að kostnaðartölur í skýrslunni eru birtar með fyrirvara. Kostnaðartölur miðast við efnistöku í Vestmannaeyjum
sem er ekki raunhæft.

101208-SKY-001-V03-Vestmannaeyjahöfn Skipulagsgreining.pdf