Sjötta umferð Bestu deildar karla klárast í kvöld með fjórum leikjum. Fjörið hefst klukkan 18:00 á Hásteinsvelli þegar Eyjamenn taka á móti Víkingum. Víkingar hafa leikið gríðarlega vel í upphafi tímabils og hafa sigrað alla fimm leiki sína í deildinni. Eyjamenn hafa hins vegar sigrað tvo af fimm leikjum sínum á tímablinu.