Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Sæunn Magnúsdóttir formaður ÍBV íþróttafélags undirrituðu áframhaldandi samstarfsamning milli bæjarins og félagsins í vikunni. Frá þessu er greint í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. “ÍBV skiptir samfélagið í Eyjum miklu máli. Félagið heldur úti öflugu íþróttastarfi og auk þess heldur ÍBV íþróttafélag fjóra stóra viðburði á ári hverju; þjóðhátíð, tvo stór fótboltamót og þrettándann.”