Einbeitning, sjálfstraust, leikgleði og einbeittur vilji var lykillinn að sigri ÍBV á Haukum á Ásvöllum í kvöld, 26:29. Heilt yfir var leikurinn nokkuð jafn og í hálfleik skildu aðeins tvö mörk liðin að, 11:13 fyrir ÍBV. En eins og svo oft áður átti ÍBV síðustu mínúturnar skuldlausar.

Rún­ar Kára­son var fremstur meðal jafningja með 11 mörk en það var fyrst og fremst liðsheildin sem skilaði þessum kærkomna sigri í úrslitunum, þar sem staðan er 2:0 fyrir ÍBV.

Þriðji leikurinn er á föstudaginn og þá eiga Eyjamenn möguleika á að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Takist það fara þeir taplausir í gegnum úrslitakeppnina sem sýnir styrk liðsins. En Haukar eru sýnd veiði en ekki gefin þannig að við verðum að bíða og sjá.

Stöð 2 Sport á þakkir skildar fyrir frábæra umfjöllun fyrir og eftir leiki og líflegar lýsingar. Þeirra heitasta ósk er örugglega að fá fleiri leiki en þrjá en eru líka tilbúnir til að taka þátt í gleðinni fari bikarinn á loft í Vestmanneyjum á föstudaginn.

Markahæstir Eyjamanna voru Rúnar með 11, Elmar 5 og Theódór 5. Pavel varði 6 og Petar 1. Í allt skoruðu 10 Eyjmenn mark í leiknum og allir 16 á skrá komu við sögu í leiknum.

Theódór var frábær í kvöld og það sama á við Rúnar. Myndin er tekin eftir fyrsta leikinn í Vestmannaeyjum.

Mynd Sigfús Gunnar.