Verkið Hringvegur (1), Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá, er annar áfangi breikkunar Suðurlandsvegar milli Selfoss og Hveragerðis. Umferðaröryggi eykst til muna með þessari framkvæmd enda eru akstursstefnur nú aðskildar og vegamótum hefur fækkað úr rúmlega tuttugu í tvenn.
Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar opna formlega nýjan veg milli Hveragerðis og Selfoss fimmtudaginn 25. maí klukkan 10:00. Klippt verður á borða við eftirlitsstað rétt austan við Kotströnd. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, segja nokkur orð.
Frá Vegagerðinni.

