Enga aðför að kjörum kvennastétta – Ályktun frá aðalfundi Drífanda stéttarfélags:

Opinbert hlutafélag í eigu Vestmannaeyjabæjar sendi ræstingafólki um borð í m/s Herjólfi bréf í síðasta mánuði þar sem þeim var tilkynnt að skerða ætti kjör þeirra. Að því er virðist til þess eins að bjarga rekstri ferjunnar sem hefur ekki sýnt góða afkomu undanfarið. Engir aðrir starfsmenn fyrirtækisins fengu viðlíka sendingu sem betur fer.

Aðalfundur Drífanda mótmælir aðför að kjörum þessara fólks sem vinna störf sín af vandvirkni og samviskusemi eins og Eyjamenn þekkja. Að skerða laun ræstingafólks þegar eitthvað bjátar á í rekstri eru forkastanleg vinnubrögð ættuð úr fortíðinni og mun ekki snúa rekstrinum til betri vegar.

Fundurinn skorar á fyrirtækið að draga þessa kjaraskerðingu til baka og snúa sér frekar þangað sem meira er til skiptanna og láta láglaunuð hefðbundin kvennastörf í friði þegar niðurskurðarhnífnum er beitt.

Vestmannaeyjum 24. maí 2023
Aðalfundur Drífanda stéttarfélags