Þrír leikir eru spilaðir í 10. umferð Bestu deildar karla í dag en Fylkir og ÍBV mætast klukkan 17:00 í Árbænum. ÍBV liðið situr í næst neðsta sæti deildarinnar með sex stig úr 8 leikjum. Fylkir er á svipuðum slóðum í níunda sæti með sjö stig. Bæði lið þurfa á stigum að halda til að klifra upp töfluna.