Á meðan ÍBV í Bestu deild karla tapaði 2:1 á útivelli gegn Fylki í dag náðu konurnar að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Þær mættu fyrstu deildarliði Grinda­víkur á Hásteinsvelli og var staðan 1:1 að loknum venjulegum leiktíma. Ekkert var skorað í framlengingu. Það fór því í  víta­keppni og þar skoraði ÍBV úr  fimm spyrn­um á meðan Grinda­vík skoraði úr þrem­ur.

Þóra Björg Stef­áns­dótt­ir skoraði mark ÍBV á 10. mín­útu.

Eyjakonur fagna marki gegn Þrótti á Hásteinsvelli í vor.

Mynd Sigfús Gunnar.