Samkvæmt heimildum Eyjafrétta rofnaði samband um ljósleiðarastreng Ljósleiðarans til Vestmannaeyja á föstudaginn. Líkleg ástæða er að Huginn VE missti ankeri og keðju rétt innan við Klettsnefið þegar skipið kom til hafnar í Vestmannaeyjum síðdegis á föstudaginn. Þarna liggja vatnsleiðsla, rafstrengir og ljósleiðarar. Ekkert bendir til þess að vatnsleiðsla eða aðrir strengir hafi rofnað.
Það er þó ekki útilokað að t.d. vatnsleiðslan hafa orðið fyrir hnjaski. Ekki tókst að kafa niður að henni í gær en það verður reynt í dag. Þá kemur í ljós hver staðan er og gerðar ráðstafanir til að ná upp ankeri og keðju.
Þegar þetta gerðist var Lóðsinn kallaður út til aðstoðar. „Huginn lenti í vandræðum með annað ankerið í innsiglingunni. Til að tryggja öryggi var óskað eftir að Lóðsinn væri á staðnum á meðan ankerið var skorið frá skipinu. Við munum með aðstoð kafara skoða málið betur á morgun og reyna að ná ankerinu upp. Það var enginn hætta á ferðum og skipið var alltaf á eigin vélarafli,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar í samtali við Eyjar.net. Að sögn Sindra var Huginn að koma af kolmunnamiðum austur af Færeyjum. Aflinn er um 1.800 tonn.