Tryggvi Hjaltason hjá CCP var kjörinn formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins á ársfundi ráðsins í síðustu viku. Tryggvi, sem situr einnig í stjórn Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, hefur átt sæti í ýmsum starfshópum á vegum stjórnarráðsins undanfarin ár, meðal annars í starfshópi um framtíð Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og hefur Tryggvi rannsakað rekstrarumhverfi hugverkaiðnaðarins ítarlega undanfarin ár.

Tryggvi greindi frá á facebook síðu sinni í kjölfar valsins að hugverkageirinn væri í ofursókn á Íslandi. „Hugverkageirinn er sem dæmi orðinn stærri en Sjávarútvegurinn þegar kemur að landsframleiðslu, hann hefur hæstu framleiðnina í störfum og hann er núna að moka inn fjárfestingu en daginn sem það var tilkynnt um söluna á okkur í CCP var tilkynnt um a.m.k. 30 milljón dollara (3,4 milljarðar) í fjárfestingu fyrir þrjú önnur hugverkafyrirtæki.“ Tryggvi sagði einnig að glugginn til að tryggja að Ísland verði land þar sem alvöru rannsóknar- og þróunarstarf getur þrifist sé opinn núna, „það er gluggi opinn núna í alþjóðlegu tilliti til þess að tryggja að Ísland verði land þar sem alvöru rannsóknar- og þróunarstarf getur þrifist og spennandi alþjóðleg störf eru í boði fyrir okkur sem dæla inn erlendum gjaldeyri og tryggja lífsgæði sem eru til dæmis minna háð ýmsum sveiflum sem við höfum þurft að venja okkur við.“

Afnema þarf þak til að gera Ísland samkeppnishæft
Í síðustu viku var tilkynnt að Suður-Kóreskt fyrirtæki hefði keypt íslenska tölvuleikjaframleiðandann CCP, þar sem Tryggvi vinnur, á fjörutíu og sex milljarða króna. CCP gefur út leikinn EVE Online sem hefur notið mikilla vinsælda en gert er ráð fyrir óbreyttum rekstri fyrirtækisins hér á landi.

„Stærsta einstaka aðgerðin sem stjórnvöld geta ráðist í til þess að gera Ísland samkeppnishæft er að afnema þak vegna endurgreiðslu á rannsóknar- og þróunarkostnaði,“ sagði Tryggvi í frétt Markaðarins sem fylgir Fréttablaðinu í vikunni og að salan væri mikil viðurkenningu fyrir íslenska hugverkageirann. „Salan setur okkur að mörgu leyti á kortið og er vonandi upphafið að einhverju stóru. Hún staðfestir að stórt tölvuleikjafyrirtæki, sérfræðingar í þessum bransa, telur að hugvit sem var byggt upp alfarið hér á landi sé 48 milljarða króna virði.“

Stór alþjóðleg verkefni ef þakinu væri lyft af
Tryggvi segir í fréttinni að í hugverkageiranum skipti það miklu máli að umhverfið sé alþjóðlega samkeppnishæft. Hann segir það vera eitthvað sem mörg stórfyrirtæki horfi til og það sé mikils að vinna. „Við gætum laðað hingað til lands stór alþjóðleg verkefni með því að lyfta þakinu af.“ Með hverju verkefni verði til bæði þekking og verðmæti í íslenska hagkerfinu sem að jafnaði auki líkurnar á fleiri slíkum verkefnum. Tryggi segir jafnframt að stjórnvöld hafi heitið því í fjármálaáætlun sinni að afnema þetta þak. „Það hafði áhrif við söluna.“ Hann segir þetta skipta máli þegar fyrirtæki spyrji sig hvar þau eigi að staðsetja uppbyggingu á rannsóknum og þróun í framtíðinni. „Gera þau það í íslenska hagkerfinu, því við erum samkeppnishæf, eða gera þau það í öðrum löndum því við erum ekki samkeppnishæf? Það er stóra spurningin. Salan er að setja okkur á kortið og staðfestir að umhverfið hér á landi sé að verða samkeppnishæft. Við erum allavega á leiðinni í þá áttina.“

Stýrirhóp um mótun nýsköpunarstefnu
Tryggvi var í gær valinn í stýrirhóp um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. En í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að nýsköpun og rannsóknir séu meðal þeirra málaflokka sem lögð verði megináhersla á.