Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið lokahóp úr leikmönnum sem leika á Íslandi til farar á 4 landa mót í Kína. Leikið verður gegn Kína. Mexíkó og Thaílandi.
Eyjólfur valdi Sigurð Arnar Magnússon frá ÍBV en Sigurður hefur verið í landsliðshóp Eyjólfs undanfarna leiki.  Sigurður er vel að þessu vali komin en hann var nánast fastamaður í mfl.liði ÍBV á nýliðnu leiktímabili og vakti mikla athygli.  Sigurður var svo á lokahófi félagsins valin efnilegasti leikmaður ÍBV.