Sig­ríður Lára Garðars­dótt­ir, landsliðskona í knatt­spyrnu, hef­ur skrifað und­ir nýj­an samn­ing við ÍBV eft­ir að hafa síðustu mánuði verið hjá Lilleström og orðið Nor­egs­meist­ari með liðinu. Þetta eru afar góðar frétt­ir fyr­ir ÍBV en Sísí, eins og hún er kölluð, hef­ur verið al­gjör lyk­ilmaður í Eyjaliðinu síðustu ár. Þess má geta að ÍBV á enn eft­ir að til­kynna um ráðningu nýs þjálf­ara fyr­ir næsta tíma­bil en sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is mun Jón Ólaf­ur Daní­els­son taka við liðinu sem aðalþjálf­ari á nýj­an leik.

Sig­ríður Lára gekk í raðir Lilleström frá ÍBV í ág­úst síðastliðnum og gerði skamm­tíma­samn­ing við norska fé­lagið. Henni stóð til boða að vera áfram hjá Lilleström, sem komið er í 8-liða úr­slit Meist­ara­deild­ar Evr­ópu eft­ir að hafa slegið út Brönd­by og leik­ur bikar­úr­slita­leik­inn í Nor­egi 1. des­em­ber, en afþakkaði það. „Ég er búin að skrifa und­ir samn­ing við ÍBV. Mig lang­ar bara að hjálpa mínu liði. Hjartað slær í Eyj­um,“ seg­ir Sig­ríður Lára, sem seg­ir það hins veg­ar hafa verið kær­komna lífs­reynslu að æfa og spila með besta liði Nor­egs, og kynn­ast því að vera at­vinnumaður í íþrótt­inni. Þetta var mjög skemmti­legt og líka krefj­andi. En ég er mjög heimakær. Það var erfitt að vera í burtu frá fjöl­skyld­unni og það er ein ástæða þess að ég er að koma heim. Það var samt mjög gott að prófa þetta. Ég fékk öðru­vísi reynslu og kynnt­ist ann­ars kon­ar fót­bolta sem þær spila. Þetta er virki­lega gott lið og mik­il gæði á æf­ing­um þarna,“ sagði Sísí Lára í samtali við mbl.is