Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær óskaði framkvæmdastjóri ráðsins eftir fjármagni til að koma á tímabundið 50% stöðugildi starfsmann til að vinna með málefni fjölmenningar í Vestmannaeyjum. Staðan er hugsuð til tveggja ára.

Meirihluti fjölskyldu og tómstundaráðs veitir jákvæða umsögn við 50% starfshlutfall til að sinna fjölmenningu í Vestmannaeyjum sem tilraunaverkefni til eins árs. Meirihlutinn fagnar því að auka eigi við þjónustu fólks með erlent ríkisfang þar sem fjöldi þeirra hefur aukist töluvert og er orðin 9% af íbúafjölda í Vestmannaeyjum. Enda stefna að styrkja þjónustu við þennan hóp. Meirihlutinn vísar þessu til vinnu við sérsamþykktir á milli umræða um fjárhagsáætlun 2019. Samþykkt segja Helga Jóhanna Harðardóttir, Haraldur Bergvinsson og Hrefna Jónsdóttir. Gísli Stefánsson og Páll Marvin Jónsson voru á móti.

Fulltrúar D listan bóka eftirfarandi: 
“Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að sinna vel málefnum íbúa af erlendum uppruna og hefur undanfarin ár verið lögð mikil áhersla innan fræðslukerfisins að sinna sérstaklega börnum af erlendum uppruna. Hafa starfsmenn Bókasafns Vestmannaeyja einnig sinnt aðstoð við heimanám þessa hóps. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja varhugavert að auka enn frekar við útgjaldaaukningu málaflokksins en rekstraróhagræði getur einnig fylgt því að fjölga hlutastörfum. Réttara væri að útvista verkefnum til þeirra aðila sem þegar eru að veita íbúum af erlendum uppruna aðstoð og stuðla þannig að samræmingu þeirra á milli og bæjarins.” (sign. Gísli Stefansson og Páll Marvin Jónsson)