Skip Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa fiskað einstaklega vel á árinu. Bergey landaði í Eyjum sl. miðvikudag og fór þá yfir 5.000 tonnin. Aflinn í veiðiferðinni var blandaður; ýsa, þorskur, karfi og ufsi.

Nú þegar er árið 2018 orðið það ár sem skip Bergs-Hugins hafa skilað mestum afla á land. Til þessa veiddu skipin mest í fyrra eða 8.574 tonn, en í ár er aflinn orðinn 9.800 tonn og hann mun fara yfir 10.000 tonnin ef vel viðrar þá veiðidaga sem eftir eru af árinu. Eins og áður er ýsan sú tegund sem skipin fiska helst, en á árinu er ýsuaflinn orðinn 3.200 tonn.

Þegar Bergey kom til hafnar sl. miðvikudag var að sjálfsögðu boðið upp á tertu og 5.000 tonna tímamótunum fagnað. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að áhöfnin sé ánægð með árangurinn á árinu. „Segja má að árið hafi allt verið afar gott. Vertíðin við Eyjar var glimrandi og síðan höfum við veitt fyrir austan og það hefur gengið vel. Það virðist þó vera heldur minna af ýsu en síðustu ár, en auðvitað getur ræst úr því. Við erum mjög sáttir hér um borð og strákarnir standa sig alltaf frábærlega. Það er ómetanlegt að hafa góða áhöfn. Gert er ráð fyrir að síðasta löndunin hjá okkur og Vestmannaey verði 13. desember, en Vestmannaey var einmitt að landa fyrir austan í gær,“ segir Jón.