Ráðgert var að Heimaey VE 1, skip Ísfélagsins, héldi í gærkvöldi frá Eskifirði til loðnuleitar, en rúmur áratugur er síðan farið var í leit að loðnu í desember. Ráðgert er að leiðangurinn standi í um vikutíma, en veðurspá er ekki góð fyrir næstu daga. Verkefnið er unnið í samvinnu Hafrannsóknastofnunar og útgerða uppsjávarskipa, þessu er greint frá í Morgunblaðinu í dag.
Heimaey fer norðaustur frá Eskifirði og síðan í vestur eftir fyrirfram ákveðinni leið með landgrunnskantinum á þekktri gönguslóð loðnunnar. Með þessari vöktun er reynt að tryggja að ekkert af loðnu fari framhjá án þess að menn hafi upplýsingar um það. Rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson fara síðan í hefðbundinn loðnuleiðangur eftir áramót og væntanlega einnig skip frá útgerðinni, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.