Ákveðið hefur verið að veiðiskipin Ásgrímur Halldórsson frá Hornafirði og grænlenska skipið Polar Amaroq haldi í dag til loðnuleitar ásamt rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni.
Síðastnefnda skipið fór til leitar á mánudag og hefur verið fyrir norðaustan land.
Leiðangur skipanna þriggja hefst fyrir suðaustan land í grennd við Hornafjörð og verður siglt á móti göngu loðnunnar norður með Austfjörðum og síðan vestur með Norðurlandi. Vonast er til að á þennan hátt takist að ná utan um stærð veiðistofns loðnu. Enn vantar nokkuð upp á mælingu til að upphafskvóti verði gefinn út.