Aðalfundir Sjálfstæðisfélagsins í Vestmannaeyjum og fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum voru haldnir í kvöld miðvikudaginn 27.febrúar.

Prýðis mæting var á fundina en á þá mættu á fimmta tug félaga. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf þar sem m.a. voru kjörnar stjórnir félaganna.

Stjórn sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja skipa:
Páll Marvin Jónsson formaður, Andrea Guðjóns Jónasdóttir, Sindri Ólafsson, Kolbrún Kjartansdóttir og Rut Haraldsdóttir.

Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum skipa:
Jarl Sigurgeirsson formaður, Silja Rós Guðjónsdóttir, Sigurjón Örn Lárusson, Páll Marvin Jónsson (formaður Sjálfstæðisfélagsins) og Ragnheiður Perla Hjaltadóttir (formaður Eyverja)

Stjórnirnar tvær funda ávallt saman sem ein stjórn. Þær munu fljótlega hittast og skipta með sér verkum.

Á fundi Sjálfstæðisfélagsins var einróma samþykkt eftirfarandi ályktun sem beint er til bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna:
,,Það er ánægjulegt að fylgjast með og verða vitni að því hvernig hin góðu verk og ákvarðanir Sjálfstæðismanna síðustu kjörtímabila verða að veruleika.

Uppbygging Fiskiðjunnar er þar gott dæmi um eitt mesta framfaraskref í fegrun bæjarins, auðgunar mannlífs og viðbót atvinnutækifæra. Allur sá rekstur sem því húsi tengist og ótrúleg ásýndarbreyting svæðisins er til fyrirmyndar.

Yfirtaka bæjarins á rekstri Herjólfs og smíði nýrrar ferju samhliða því er arfleifð sem við erum stolt af að hafa komið til leiðar.

Aðgerðir í þágu barnafjölskyldna svo sem heimagreiðslur, lækkun leikskólagjalda, bygging og endurbætur leikskóla, fleiri inntökutímabil, uppbygging skólalóða, frístundastyrkur og margt fleira er ánægjuefni. Sérlega er ánægjulegt að sjá að tillögur sjálfstæðismanna, um viðbyggingu við Hamarsskóla sem gefa tækifæri á því að sameina undir einu þaki yngri deild grunnskóla, Tónlistarskóla, fimm ára deild og frístundaheimili, hafi fengið jákvæðar undirtektir og séu komnar í ferli.

Viðbyggingar við Hraunbúðir, endurskipulagning á húsnæði, aðstaða eldri borgara í Kviku og lengi mætti telja aðgerðir í þágu eldri borgara.

Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins hvetur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að halda áfram á braut góðra verka. Það er mikilvægt að sá mikli kraftur sem í grasrót flokksins býr og drífur áfram flokksstarfið nái að skila sér í bættum hag bæjarbúa hér eftir sem áður fyrr.“

Aðalfundur Fulltrúaráðs tók einnig undir og samþykkti ályktunina samhljóða.

Á fundunum kom fram að mikil gróska er í starfi Sjálfstæðisfélagsins og fulltrúaráðs. Félögin eru lifandi og voru fjöldamargir viðburðir á dagskrá síðasta starfsárs. Stefnan er að svo verði áfram. Grasrót félaganna er virk og hefur staðið dyggilega við bak bæjarfulltrúa sinna m.a. með sameiginlegum fundum félaga og kjörinna fulltrúa. Stiklað var á stóru í viðburðum síðasta starfsárs sem var óvenju viðburðarríkt. Það var gott hljóð í fundarmönnum þar sem léttleiki og  bjartsýni ríkti meðal manna.

Stjórnir Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja og fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum.