Hinn margfrestaði leikur á milli ÍBV og Akureyrar í 17. umferð Olís-deildar karla í handknattleik verður spilaður í Vestmannaeyjum í kvöld.
Þrívegis hefur þurft að fresta leiknum en í tilkynningu frá HSÍ segir að Akureyringarnir hafi komið með Herjólfi í gærkvöldi og hefst leikurinn klukkan 18.
Íslandsmeistarar ÍBV eru í 6. sæti deildarinnar með 15 stig en Akureyri er í 11. og næstneðsta sætinu með 8 stig.