ÍBV vann Selfoss með níu mörkum í Olís­deild­ kvenna í handbolta í dag. Sel­foss er þar með fallið úr úr­vals­deild kvenna. Ester Óskars­dótt­ir átti stór­leik og skoraði níu mörk en leikn­um lauk 28:19.

ÍBV er nú í harðri bar­áttu um sæti í úr­slita­keppn­inni en liðið er með 23 stig í fjórða sæti deild­ar­inn­ar, jafn mörg stig og Hauk­ar sem á leik til góða. KA/Þ​ór er í fimmta sæt­inu með 19 stig eft­ir 19 leiki og á ennþá mögu­leika á sæti í úr­slita­keppn­inni, fari svo að ÍBV tapi báðum sín­um leikj­um.