Hin nýja Vestmannaey sem er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi var sjósett í gær. Sjósetningin átti sér stað með nokkuð óvenjulegum hætti og lýsir Guðmundur Alfreðsson útgerðarstjóri Bergs-Hugins henni svo: „Skipið var dregið út úr húsi í gær og því síðan komið fyrir á pramma. Pramminn var síðan dregin út á flóa og þar er honum sökkt undan skipinu þar til það flýtur. Byrjað var að dæla sjó í prammann klukkan fimm í morgun og Vestmannaey flaut akkúrat klukkan 10.54 þannig að þetta tók töluverðan tíma. Skipið er glæsilegt á floti og allir afar ánægðir með vel unnið verk. Ráðgert er að vélar skipsins verði gangsettar 5. eða 7. maí. Hinn 6. maí er mánudagur og það kemur ekki til greina að gangsetja vélarnar á mánudegi,“ segir Guðmundur.

Guðmundur segir að ráðgert sé að afhending skipsins fari fram 2. júlí nk.