Kvikmyndahátíðin heldur áfram í dag og verða tvær kvikmyndir. Pysjuævintýrið – stuttmynd sem tekin var í Eyjum árið 2000 og Verstöðin Ísland, heimildamynd um íslenskan sjávarútveg  – Fjórði og síðasti hlutinn sem tekinn var í Vestmannaeyjum.

 Í fjölskyldumyndinni Pysjuævintýrið er dregin upp skemmtileg mynd af því þegar börn í Vestmannaeyjum flykkjast út á haustkvöldum til að bjarga pysjum sem fljúga á ljósin í bænum þegar þær yfirgefa holur sínar í fjöllunum í kring. Þeim er safnað í kassa og sleppt í sjóinn daginn eftir.

Í þessari pysjusögu stendur bærinn fyrir keppni um hver getur bjargað flestum pysjum á þremur dögum og hefur bæjarstjórnin lofað veglegum verðlaunum. Systkinin Anna og Bragi taka þátt í keppninni en einnig fylgjast áhorfendur með Axel sem beitir nokkuð óviðeigandi aðferðum við að ná sem flestum pysjum eftir að hann kemst að því hver hinn veglegi vinningur í keppninni er. Aðalleikendur eru Hjálmar ViðarssonÍrena Dís Jóhannesdóttir og Ingvar Örn BergssonLeikstjóri og aðalframleiðandi er Sveinn M. Sveinsson. Pysjuævintýrið er stutt mynd og var frumsýnd í janúar 2001 í  Bíóinu í Vestmannaeyjum að viðstöddum krökkum sem komu fram í myndinni. Verður gaman fyrir þau og kannski börn þeirra að kíkja á Pysjuævintýrið á átján ára afmæli myndarinnar.

 

Verstöðin Ísland – Vestmannaeyjar (55 mín.)
Heimildamyndabálkurinn Verstöðin Ísland, kom upphaflega út í fjórum hlutum 1992, hefur verið endurunninn og er kominn í stafrænt form. Myndaflokkur sem gerður var af Erlendi Sveinssyni, Sigurði Sverri Pálssyni og Þórarni Guðnasyni. Verstöðin Ísland var á sínum tíma langviðamesta og dýrasta heimildarmynd sem ráðist hafði verið í á Íslandi og hefur haldið þeirri stöðu allt til dagsins í dag.

Fjórði hlutinn, sem sýndur verðurer um útgerðarhætti á framleiðslutíma myndarinnar og nefnist: Ár í útgerð. Þessi myndhluti var að nær öllu leyti tekinn upp í Vestmannaeyjum árið 1988 þar sem áhafnir togarans Breka VE og vertíðarbátsins Suðureyjar eru í aðalhlutverkum ásamt útgerðarmönnum þessara skipa sem voru þeir Sigurður heitinn Einarsson, forstjóri Ísfélagsins frá 1992 en þáverandi forstjóri Hraðfrystistöðvarinnar og Hjörtur Hermannsson, framkvæmdastjóri Samtogs.