Alls er búið að landa 185 þúsund tonnum af kolmunna frá áramótum, samkvæmt yfirliti á vef Fiskistofu, en heimildir ársins eru alls um 267 þúsund tonn. Ísfélagið og Vinnslustöðin eru búin að veiða sinn kolmuna og bíða nú eftir makrílnum.
Eyþór Harðason hjá Ísfélaginu sagði að Sigurður væri á heimleið. „Sigurður kemur í kvöld með 2500 tonn af kolmunna úr færeysku lögsögunni og er það okkar eina veiðiferð þangað á þessari vertíð. Næstu verkefni eru makrílveiðar í júlí,“ sagði Eyþór.
Síðasta löndun í kolmunna hjá Vinnslustöðinni var 1. Maí sl. „Við tókum sitthvorn túrinn á skip, Ísleif og Kap, niður til Færeyja. Þeir túrar gengu mjög vel og veiðin var nokkuð góð, “ sagði Sindri Viðarsson hjá Vinnslustöðinni í samtali við Eyjafréttir, „ núna bíðum við bara eftir makríl sem byrjar líklega í júlí,“ sagði Sindri.