Börnin á Klettsvík voru dugleg að lesa.

Leikskólinn Kirkjugerði stóð fyrir lestrarátaki í apríl og maí og voru foreldrar barnanna fengin með í átkakið. „Þar sem að við á Kirkjugerði elskum að lesa og lesum á hverjum degi ákváðum við að fara í smá lestrarátak og fá foreldra með okkur í lið. Lestrarátakið lýsir sér þannig að börnin fá heim með sér Lubba bein, á þessi bein skrifa þau svo nafnið sitt, dagsetningu og nafnið á bókinni sem var lesin. Þegar búið er að lesa bókina koma þau með beinið í leikskólann og hengja það upp á beinafjallið okkar,“ sagði Kolbrún Kjartansdóttir deildarstjóri á Kirkjugerði.

Ákveðið var að fara í þetta verkefni til þess að hvetja til lesturs heima fyrir og auka ánægjustundir foreldra með börnunum. „Börn elska að láta lesa fyrir sig. Við vinnum mikið með Lubba og ákváðum að nota hann sem fyrirmynd,“ sagði Kolbrún. Kirkjugerði er 5 deilda leikskóli með börn á aldrinum 1 til 5 ára og það eru allir sem hafa tekið þátt í þessu verkefni með okkur. Við ákváðum að hafa þetta verkefni í einn mánuð og fóru viðtökurnar fram úr okkar björtustu vonum. Það komu 732 Lubba bein í leikskólann og voru blaðsíðurnar sem lesnar voru 19.030,“ sagði Kolbrún.