Laugardaginn 15. júní nk., mun samgönguráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson afhenda Vestmannaeyingum nýja ferju fyrir samgöngur milli lands og Eyja. Af því tilefni verður efnt til formlegrar móttökuathafnar í Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum. Athöfnin hefst kl. 14:15 með ræðum samgönguráðherra, forstjóra Vegagerðarinnar, formanni bæjarráðs og fulltrúa Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Prestur Landakirkju mun blessa skipið og forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir formlega nefna það.

Í framhaldi verður skipið bæjarbúum og öðrum gestum til sýnis. Boðið verður upp á veitingar, skemmtiatriði o.fl. milli kl. 14:30 og 16:00. Sunnudaginn 16. júní verður skipið jafnframt til sýnis frá 16:00 til 18:00.

Bæjarbúar og aðir gestir eru hvattir til að koma niður á bryggju, gera sér glaðan dag og njóta tímamótanna.