Strákarnir í ÍBV taka á móti Selfyssingum í fimmtu umferð Olís deildar karla í kvöld. Selfysingar standa í ströngu þessa dagana en þeir taka á móti HK Malmö í hleðsluhöllinni næstu helgi. ÍBV er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir og geta með sigri í kvöld jafnað ÍR á toppi deildarinnar.