Olísdeild karla fer af stað í kvöld eftir landsleikjahlé. ÍBV strákarnir mæta Haukum kl. 18:30 í kvöld á Ásvöllum. Haukar eru í efsta sæti deildarinnar með 11 stig en ÍBV í því fimmta með átta stig. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport.