Á dögunum tók Foreign Monkeys upp myndband við lag sitt Return sem kom út á samnefndir breiðskífu í apríl sl.

Myndbandið er í nokkuð villtum stíl með súrum húmor og hafa þeir sem að verkinu komu séð samnefndnara með myndbandinu og sjónvarpsþátttaröðinni Office með Ricky Gervais.

Föstudagskvöldið 8. nóvember nk. kl. 21.00 mun fara fram forsýning á myndbandinu í betri stofu Brother Brewery ásamt því að svo kallað B-roll myndband með mistökum og öðru gleðilegu verður sýnt á eftir. Að sjálfsögðu er frítt inn.

Aðalleikari í myndbandinu er Hreggviður Óli Ingibergsson en hann sýnir stórleik í frumraun sinni á hvíta tjaldinu.