Safnahelgi verði sett á morgun kl. 18.00 við Stafkirkjuna en klukkutíma áður verður opnuð sýning Lista og menningarfélagsins á sýningu í anda Júlíönu Sveinsdóttur. Síðan tekur við hver viðburðurinn af öðrum og má segja að dagskrá haldi áfram út mánuðinn. Hér er dagkráin næstu tvær helgar en nánar verður auglýst það sem síðar kemur.

Fimmtudagur 7. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja opnar samsýninguna Í anda Júlíönu Sveinsdóttur. Félagið verður með opið hús að Strandvegi 50 (Hvíta húsinu) helgina 9.-10. nóv. kl. 16:00-18:00.
Fimmtudagur 7. nóvember kl. 18:00 í Stafkirkju. Setning Safnahelgar.
Föstudagur 8. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Úr safni Sigurgeirs ljósmyndara. Sigurgeir frá Skuld sýnir valdar listrænar myndir og Helga Hallbergsdóttir fer yfir syrpu hans af verkefninu Hraun og menn.
Laugardagur 9. nóvember kl: 12 í Einarsstofu, Safnahúsi. Súpa í boði Söguseturs 1627.
Laugardagur 9. nóvember kl: 12:30 í Einarsstofu, Safnahúsi. Bjarni Harðarson skrifar undir samning við Sögusetur 1627 um útgáfu á Reisubók sr. Ólafs Egilssonar.
Laugardagur 9. nóvember kl: 13 í Einarsstofu, Safnahúsi. Bjarni Harðarson kynnir nýjar bækur hjá Sæmundarútgáfunni. Harpa Rún Kristjánsdóttir og Guðjón Ragnar Jónasson lesa úr nýjum bókum sínum.
Laugardagur 9. nóvember kl. 14:30 í Einarsstofu, Safnahúsi. Guðrún Bergmann fjallar um 5 einfaldar leiðir til að bæta heilsuna og kynnir nýjustu bók sína BETRA LÍF fyrir konur á besta aldri.
Laugardagur 9. nóvember kl. 16:00 í Hvítasunnukirkjunni, stóra salnum: Lúðrasveit Vestmannaeyja með hátíðartónleika í tilefni af 80 ára afmælis sveitarinnar.
Sunnudagur 10. nóvember kl. 13:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Hörður Baldvinsson, safnstjóri Sagnheima segir frá för fimm Eyjamanna á Ólympíuleikana í Berlín 1936.
Sunnudagur 10. nóvember í Sagnheimum, Safnahúsi. Að loknu erindi Harðar er opnuð sýning á myndum og fleiru sem tengist för þeirra. Voru Eyjamennirnir fimm í hópi 50 Íslendinga sem fóru á þessa frægustu Ólympíuleika allra tíma.
Föstudagur 15. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu í Safnahúsi. Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Á þessari 10. ljósmyndasýningu sýna Jói Myndó, Sigmar Pálmason (Bói Pálma) og Halldór Sveinsson.
Föstudagur 15. nóvember kl. 20:30 í Eldheimum. Halldór Einarsson (Henson) kynnir nýja bók sína.
Laugardagur 16. nóvember kl. 11:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Sigurgeir Jónsson kynnir nýja bók og sýndar verða teikningar Sunnu Einarsdóttur sem myndskreytti bókina. Tónlistaratriði á vegum Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
Laugardagur 16. nóvember kl. 13:00 í Náttúrugripasafni við Heiðarveg. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri opnar sýningu á munum safnsins, fugla- og steinasafni. Hörður Baldvinsson fjallar um sögu safnsins og Djúpið opnar sýninguna Fast þeir sóttu sjóinn.
Laugardagur 16. nóvember kl. 14:00 í Slökkvistöðinni við Heiðarveg. Opið hús til kl. 16:00.
Laugardagur 16. nóvember kl. 14:00 í húsnæði Sea Life Trust. Ásrún Magnúsdóttir kynnir og les upp úr nýrri bók sinni Ævintýri Munda lunda.
Sunnudagur 17. nóvember kl. 13:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Ragnar Jónsson á Látrum fjallar um spíramálið í Vestmannaeyjum á þjóðhátíð 1943.
Sunnudagur 17. nóvember í Sagnheimum, Safnahúsi. Að loknu erindi Ragnars fjallar Ragnar Óskarsson um Sigríðarslysið.