Nú hefur ungmennaráð Vestmannaeyjabæjar verið endurvakið eftir nýjum lögum og reglum. Eru það miklar gleði fréttir fyrir sveitafélagið.
Tilgangurinn með ungmennaráði er annars vegar að veita ungmennum fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum og hins vegar að skapa vettvang og leiðir til þess að gera ungmennum kleift að koma hugmyndum og skoðunum sínum á framfæri m.a. við kjörna fulltrúa sveitarfélagsins.  Eins að ungmennaráð komi skoðunum ungs fólks á framfæri og verði ráðgefandi um málefni sem þau varðar.

Í ungmennaráði mega þau ungmenni sitja sem eru á aldrinum 13-20 ára og hafa lögheimili í Vestmannaeyjum.

Þeir sem skipaðir eru í ungmennaráð eru:

Emma Jónatansdóttir

Snorri Rúnarsson

Daníel Hreggviðsson

Guðbjörg Sól Sindradóttir

Eva Sigurðardóttir

Ægir Freyr Valsson

Daníel Scheving