Málefni Hraunbúða voru rædd á fundi bæjarráðs í gær. Undanfarin ár hefur Vestmannaeyjabær lagt töluvert fé til reksturs Hraunbúða, dvalar- og hjúkrunarheimili, þrátt fyrir að ríkinu beri að fjármagna þann rekstur á fjárlögum. Framlög Vestmannaeyjabæjar til rekstursins hafa aukist frá ári til árs án þess að bærinn geti haft þar áhrif á. Í lok árs 2009 skulduðu Hraubúðir Vestmannaeyjabæ rúmar 176 m.kr. og til vibótar er uppsafnaður halli frá 2010 kominn í 390 m.kr., eða samtals 566 m.kr. á verðlagi hvers árs. Þessi staða er óviðunandi og getur ekki gengið svona áfram. Ríkið þarf að uppfylla skyldur sínar, en ekki skýla sér á bak við Sjúkratryggingar Íslands. Vestmannaeyjabær er vel í stakk búinn til að reka Hraunbúðir, en ríkið þarf að greiða framlög sem standa undir þeim rekstri sem ríkið sjálft gerir kröfulýsingu um.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með heilbrigðisráðherra vegna hallareksturs Hraunbúða og ófullnægjandi framlög ríkisins með rekstrinum., m.a. hvort áfram séu forsendur til að Vestmannaeyjabær haldi áfram rekstri Hraunbúða. Einnig er bæjarstjóra falið að eiga samtal við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu um áform samtakanna í þessum efnum.