Smáey VE, sem áður bar nafnið Vestmannaey, hefur verið seld Þorbirni hf. í Grindavík. Verður skipið afhent nýjum eiganda í byrjun maímánaðar.
Vestmannaey er ísfisktogari sem smíðaður var í Gdynia í Póllandi fyrir Berg-Hugin í Vestmannaeyjum árið 2007. Skipið er 485 brúttótonn, 28,9 m langt og 10,39 m breitt með 699 hestafla Yanmar vél.
Vestmannaey landaði í fyrsta sinn afla seint í marsmánuði 2007 og frá þeim tíma hefur skipið borið að landi 47.000 tonn á þeim þrettán árum sem Bergur-Huginn hefur gert það út. Meðalafli skipsins hefur verið um 3.600 tonn á ári en mesti ársafli þess var 2019 þegar hann var 5.200 tonn. Miðað við fiskverð hvers tíma er heildarverðmæti afla skipsins á þessum þrettán árum um 12 milljarðar króna.
Þegar ný Vestmannaey kom til landsins á síðasta ári fékk skipið nafnið Smáey og hefur það verið leigt Samherja hf. að undanförnu.
Birgir Þór Sverrisson var skipstjóri á Vestmannaey allt þar til nýja Vestmannaey kom til sögunnar. Birgir segist bera afar hlýjar taugar til gömlu Vestmannaeyjar. „Í sannleika sagt þá saknar maður skipsins þó svo að nú sé komið nýtt skip í staðinn sem vissulega er meira spennandi. Gamla Vestmannaey er geypilega vel hannað skip – einfalt og gott. Það er afburða sjóskip miðað við stærð og fer afar vel með mannskap. Segja má að þetta skip hafi gengið eins og klukka alla tíð, það hefur einungis þurft að sinna örfáum viðhaldsverkefnum en skipið hefur reynst afburða traust. Það hefur frá fyrstu tíð gengið einstaklega vel að fiska á þetta skip og það er ekki þannig að á því hafi menn  bara legið í þorski heldur hefur ávallt verið sótt í allar tegundir. Ég kvaddi þetta skip á síðasta ári með söknuði og á margar ljúfar minningar sem tengjast því, en ég ítreka að nýja Vestmannaey gefur meiri möguleika og býður upp á spennandi framtíð,“ segir Birgir Þór.