Fyrsta mál nýrrar seríu af Sönnum íslenskum sakamálum á Storytel kallast Eitrun í Eyjum. Sigursteinn Másson, sem unnið hefur að þáttunum, segir að Eitrun í Eyjum fjalli um það þegar þrír skipverjar á Stakksárfossi fundu sjórekna tunnu fulla af spíra við Vestmannaeyjar skömmu fyrir Þjóðhátíðarhelgina 1943 og hugðu sér gott til glóðarinnar.

„Það sem þeir áttuðu sig ekki á var að um var að ræða baneitraðan tréspíra en eftir helgina miklu lágu samtals níu í valnum, nokkrir fengu varanlega fötlun og tugir veiktust illa,“ segir Sigursteinn um þetta fyrsta mál nýrrar þáttaraðar af Sönnum íslenskum sakamálum.

„Í þættinum er þetta sérstæða sakamál krufið til mergjar og rætt við fólk sem upplifði atburðinn og kynnti sér þá síðar. Leyndarhyggja umlukti málið um áratuga skeið og í þættinum er varpað ljósi á það og áhrifin á hið 3000 manna samfélag.

Sömuleiðis hvernig spírinn fór í dreifingu þrátt fyrir að sjómennirnir sem fundu hann hafi reynt að ganga úr skugga um að óhætt væri að drekka hann. Þá er fjallað er um tíðarandann og sambúðina við breska herinn sem kom sér fyrir í Eyjum tveimur mánuðum eftir að Ísland var hernumið,“ bætir Sigursteinn við.

„Í nóvember sl. heyrði ég útvarpsviðtal við Ragnar Jónsson lækni þar sem hann var að tala um eitthvað gamalt mál í Vestmannaeyjum þar sem fjölmargir dóu og aðrir veiktust mikið. Heyrði hann tala um að málið hafi legið í þagnargildi árum saman.Ég hafði aldrei heyrt um þetta mál. Þetta vakti óskipta athygli mína og ég setti mig í samband við Ragnar sem hefur öðrum fremur rannsakað þetta hörmulega mál þegar níu manns létust af völdum baneitraðs tréspíra sem dreift var á Þjóðhátíð í Eyjum. Þegar ég fór að skoða málið nánar vakti sérstaka athygli mína viðbrögð Eyjamanna auk þess sem málið sjálft er einstakt á margan hátt.“

vb.is