Í kvöld kl 21 á facebook síðu Eyþórs Harðarsonar, verða tónleikar í beinni í boði algjörlega að kostnaðarlausu… Í samtali við blaðamann sagði Eyþór „þetta er mín leið að gefa fólki tilbaka og þakka fyrir mig“.

Eyþór, eða Dóri Popp eins og flestir þekkja hann er ekki að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni enn hann var í upprunarlegu Eyjabítlunum sem komu fram á árshátið FES 1984.

Þetta er 30 mínutna prógram sem mun draga saman það besta frá tónlistarferli Eyþórs og mun hann segja skemmtilegar sögur í bland við lagið sem verða til eftir svona glæstan tónlistarferil.

Það vill enginn missa af þessum viðburði sem er á heimsmælikvarða og er hugsanlegt að þetta sé í síðasta sinn sem Dóri kemur fram. Taka skal fram að allar heimildir eru hafðar eftir hinum bikaróða, Grétari Þór Eyþórssyni.

Hér er hlekkur á síðu Eyþórs:
https://www.facebook.com/profile.php?id=100007381036580