Puffin Run fer fram á morgun í þriðja sinn, met skráing er í hlaupið en rúmlega 350 einstaklingar hafa skráð sig til keppni. Þeirra á meðal er Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands en hann hyggst hlaupa alla 20 kílómetrana. Guðni er vanur hlaupari en hann hefur hlaupið hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu síðustu 15 árin. Guðni stendur í ströngu þessa dagana en fyrr í dag hóf Guðni söfnun á meðmælendum fyrir komandi forsetakosningar.