Bæjarráð ræddi á fundi sínum í gær hugmyndir og tillögur um þjónustumiðstöð á gatnamótun Suðurlandsvegar og Landeyjahafnarvegar, svokallað Laufeyjarverkefni. Sveinn Waage, einn forsprakka verkefnisins, hefur kynnt hugmyndirnar fyrir bæjarfulltrúum Vestmannaeyjabæjar, þar sem gert er ráð fyrir nýrri tegund þjónustumiðstöðvar, sem tekur m.a. mið af umhverfissjónarmiðum og fellur vel inn í landslagið.

Bæjarráð fagnar frumkvæði aðila að þjónustumiðstöð við Suðurlandsveg. Bæjarráð telur ekki unnt á þessum tímapunkti að fjárfesta í verkefninu né veita sérstakar fjárveitingar til þess. Bæjarráð er hins vegar reiðubúið til viðræðna við aðila verkefnisins um annars konar aðkomu, hvort sem það er í formi hvatningar, viðræðna við stjórnvöld um þátttöku eða annað.