Það er mikil gæfa að eiga móðurbróður (reyndar tvo móðurbræður og fjórar móðursystur) sem er svo stór og dýrmætur partur af lífi mínu. Orð eru fátækleg á svona stundum en svona minnist ég Sibba frænda sem verður jarðsettur frá Landakirkju í dag. Greinin birtist í Morgunblaðinu.Stóri frændi minn. Uppáhaldsfrændi minn.Þvílík ævintýraveröld sem það var að vera litla frænka þín. Í uppvexti mínum minnist ég sögustunda sem voru svo ótrúlegar að ég var með stjörnur í augum, hugsandi hverslags ofurhetja þú værir eiginlega! Sögur um siglingar til framandi landa þar sem þú slóst við sjóræningja, ljón og krókódíla og vannst alla bardaga. Það skipti engu máli hversu ótrúverðug sagan væri, ég trúði öllu sem þú sagðir!
Lífið er flókið fyrirbæri og öll höfum við bresti sem okkur fylgja. Við reyndum að hjálpast að í gegnum þennan öldudal sem lífið er og ég vildi óska að ég hefði getað gert meira.Takk fyrir að láta aldrei langan tíma líða á milli þess að láta mig vita hvað þér þótti vænt um mig. Þú sagðir mér ítrekað að þú værir stoltur af mér, bæði í leik og starfi, rósinni þinni eins og þú kallaðir mig svo oft.Ég vona að þú vitir hversu vænt mér þótti um þig líka og að ég sakna þín svo sárt. Ég vona líka að þú munir fylgjast með mér og haldir áfram að vera stoltur af mér.Þú ert og verður alltaf stærsta stjarna heimsins í mínum augum.Þín frænka,Margrét Rós
Sigurbjörn verður jarðsettur frá Landakirkju í dag, miðvikudaginn 8.júlí kl. 14.00.