Mjaldrarnir Litla Grá og Litla Hvít verða fluttar út í Klettsvík snemma í fyrramálið. Audrey Padgett forstöðumaður SEA LIFE Trust segir að þrotlausar æfingar og undirbúningur hafa staðið yfir síðustu vikur og allt ætti að vera til reiðu fyrir næsta skrefið í ferlinu. Audrey vildi koma eftir farandi skilaboðum til sjófarenda í Vestmannaeyjum.

„Við viljum biðla til eigenda smábáta og tuðra að aðstoða okkur við aðlögun hvalanna með því að takmarka umferð um Klettsvík. Við biðjum fólk að fara ekki með báta inn fyrir ytri flotbryggjuna. Starfsmenn Vestmannaeyjahafnar hafa verið að koma fyrir baujum til að merkja svæðið betur. Næstu vikur verður starfsfólk okkar á vakt úti í kvínni allan sólarhringinn en auk þess erum við með öflugt myndavélakerfi úti í Klettsvík. Ef einhver verður var við eitthvað grunsamlegt er hægt að hafa samband við okkur í síma 6202724.“

Audrey vildi einnig koma þeim skilaboðum til áhugasamra að þeir sem vilja fylgjast með ferlinu í fyrramálið er bent á útsýnispallinn við Flakkarann. „Við viljum þó brýna fyrir fólki að virða tveggja metra regluna og hafa smitvarnir í huga. Fyrirhugað „innfluttningspartý“ sem áður hafði verið auglýst verður ekki sökum nýrra samkomutakmarkana.“ Eins og áður segir er áætlað að flutningurinn hefjist snemma í fyrramálið og verður leiðinni sem flutningabíllinn ekur lokað af lögreglu á meðan á flutningnum stendur til að tryggja öryggi allra hlutaðeigandi að sögn Audrey.