Ætlunin er að skima 400 manns nk. mánudag  í Eyjum frá  kl. 13:00 til 16:30.  Um slembiúrtak er að ræða til að kanna hvort að simt sé í samfélaginu. Send verða út sms skilaboð með boði um þátttöku. Mikilvægt er að þeir sem fá boð skrái sig sem fyrst eftir að þeir fá boðið í gegnum link sem er í sms-inu. Svo að hægt sé að ná tilætluðum fjölda til að skima. Ekki er hægt að mæta á staðinn og fá skimun.