Það er komið að fyrsta tvíhöfða vetrarins en í dag mæta bæði karla og kvenna lið ÍBV liðum Vals í Olísdeildunum í Vestmannaeyjum. Stelpurnar hefja leik klukkan 14:45 og strákarnir fylgja svo á eftir klukkan 17:30. Kvenna lið Vals kom til Eyja í gær og karla liðið er væntanlegt með Herjólfi frá Þorlákshöfn.
Það skal tekið fram að það eru fjöldatakmarkanir á áhorfendum, en einungis er leyfi fyrir 152 áhorfendur og nú eru börn talin inn í þann fjölda. Salurinn verður opnaður 30 mínútum fyrir hvorn leik og eftir kvennaleikinn þarf að rýma húsið.
Fyrir þá sem ekki hafa tök á að koma á leikinn að þá bendum við á að báðir leikir verða í beinni útsendingu hjá Stöð2Sport.