Efni á þessari síðu er aðeins fyrir áskrifendur. Vinsamlegast skráðu þig inn til að lesa meira eða gerast áskrifandi.
Nýja útgáfan stendur nær frumriti Ólafs en þær fyrri
Sögusetrið 1627 stendur fyrir útgáfu á Reisubók séra Ólafs Egilssonar sóknarprests að Ofanleiti í Vestmannaeyjum
Sögusetrið 1627 í Vestmannaeyjum, sem er hópur áhugafólks um sögu og menningu Vestmannaeyja, hefur um nokkurra ára skeið átt sér þann draum að standa fyrir útgáfu á Reisubók séra Ólafs Egilssonar sóknarprests að Ofanleiti í Vestmannaeyjum. Eins og mörgum er kunnugt var Ólafur einn þeirra sem teknir voru til fanga í Tyrkjaráninu 1627 þegar ræningjar frá Alsír komu til Vestmannaeyja í júlí, drápu yfir 30 Eyjamenn, tóku 242 þeirra til fanga og fluttu með sér til Alsír á þrælamarkaði. Þeir Kári Bjarnason forstöðumaður Safnahúss Vestmannaeyja og Már Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands hafa annast útgáfuna fyrir hönd Sögusetursins