Laugardaginn 12. desember sl. fór fram jólamót hjá krökkum í GRV sem tekið hafa þátt í skákkennslu á vegum Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9 nú í haust.   Þátttaka í jólamótinu var góð og voru keppendur 18 talsins.  Teflt var í einum opnum flokki , alls sjö umferðir. Allir stóðu sig með prýði og fór mótið mjög vel fram að sögn Guðgeirs Jónssonar og Sæmundar Einarssonar sem annast umsjón og kennslu.

Í yngri flokknum  sigraði Ísak Starri, í öðru sæti eftir bráðabana var Nökkvi Dan og í 3. sæti var Jón Bjarki. Í eldri flokknum sigraði Sæþór, í öðru sæti var Auðunn og í 3. sæti var Heiðmar eftir bráðabana við Guðjón Tý.   Nú er skákkennslan komin í jólafrí og hefst að nýju í janúar nk. og eru  börn í Grunnskóla Vestmannaeyja sem hafa áhuga  að læra að tefla,  strákar og stelpur  hvött til að mæta,.  Ekkert námskeiðsgjald.

Auðunn, Sæþór og Heiðmar
Jón Bjarki, Ísak Starri og Nökkvi Dan