„Það eru rúmlega 550 skráðir núna við höfum aldrei séð svona áhuga með þetta miklum fyrirvara og við erum alvarlega að skoða það að loka fyrir skráningu,“ sagði Magnús Bragason einn af skipuleggjendum The Puffin Run en hlaupið er fer fram þann 8. Maí næst komandi. Þátttakendur voru 350 í fyrra sem var met þátttaka í hlaupinu. „Það er greinilegt að vel heppnað hlaup á síðasta ári hefur verið góð auglýsing fyrir viðburðinn en utanvegahlaup njóta vaxandi vinsælda á Íslandi og leiðin okkar meðal þeirra allra fallegustu.“

Athygli vekur að rúmlega 90% skráðra þátttakenda er skráður í heilan hring eða 20 km en það hefur ekki verið raunin síðustu ár. „Ég sé það á skráningunni að þetta eru margir af sterkustu hlaupurum landsins en við erum líka að fá mikið af sama fólkinu og í fyrra sem er jákvætt.“ Magnús vildi koma því á framfæri að auðvitað þyrfti að taka tillit til þeirra sóttvarnarreglna sem verða í gildi þegar að hlaupinu kemur og komi til þess að gera þurfi einhverjar breytingar fái þátttakendur að sjálf sögðu endurgreitt. „Við erum bjartsýn að við verðum á þeim stað í maí að geta boðið upp á glæsilegt hlaup sem hefur fest sig í sessi hjá hlaupurum“, sagði Magnús að lokum.