Kvennalið ÍBV mætir toppliði Fram klukkan 16:15 í dag. ÍBV situr í fjórða sæti deildarinnar og því ljóst að um hörku leik er að ræða. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport en Eyjamenn eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta í íþróttamiðstöðina og styðja stelpurnar.