Þann 1. maí næstkomandi eru rétt eitt hundrað ár liðin frá stofnun Knattspyrnufélagsins Týs.  Við gömlu nágrannarnir á Illugagötunni ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt til að minnast þessara merku tímamóta. Halli Steini ræddi við Halldór frænda í Henson og fékk hann til að rippa upp nokkrum gamaldags íþróttabúningum fyrir okkur af þessu tilefni. Ég var nú búinn að steingleyma nákvæmlega hvenær félagið var stofnað, en Halli Steini mundi það því hann á afmæli á þessum degi og verður því núna þann 1. maí 65 ára gamall.

Gömlu nágrannarnir á Illugagötunni, Halli Steini og Hörður Bald

Í sögu Knattspyrnufélagsins Týs sem bróðir minn, Birgir Þór Baldvinsson, tók saman kemur eftirfarandi fram um stofnun félagsins

“Týr varð til í tuðruhallæri og ósigri í formannskjöri. Páll Scheving var einn af þeim drengjum, sem stóðu að því að stofna nýtt félag í Ofanleitishrauni 1. maí 1921. Hann setti rætur hins nýja félags í samhengi við óánægju hjá yngri strákunum, sem komust lítt að fyrir þeim eldri hjá Þór og KV. Peyjarnir tóku sig því til og gerðu eitthvað í málunum til þess að fá að sparka eins og hinir: „Já, aðdragandinn að stofnun Týs var sá að árið 1920 voru bæði Þór og KV illa stödd fjárhagslega. Við strákarnir fengum tuðrur með hangandi hendi til að spila með og þegar þeir eldri gáfu sér tíma til æfinga voru boltarnir teknir af okkur. Þá lögðum við út í þá fjárfestingu að kaupa bolta nokkrir strákar á aldrinum 16-18 ára. Nú, við saumuðum okkar flagg sjálfir, dökkblátt með brúnum bolta, það var heldur minna en Þórsflaggið. Á þessum tíma ætluðum við yngri mennirnir að koma Jóhanni Gunnari Ólafssyni að sem formanni í KV, en það gekk ekki þótt munurinn væri lítill. Það var sama óánægjan innan Þórs á þessum tíma og upp úr þessu var Týr stofnað með mönnum úr bæði Þór og KV. Fyrsti fundurinn um málið var haldinn út í hrauni, síðan voru fleiri fundir, bráðabirgðastjórn var kosin og ekki leið á löngu þar til kappleikir komu til. Búningurinn var samþykktur 5. ágúst fyrir þjóðhátíð og við lékum fyrsta leikinn við Þór en þá töpuðum við. Síðar um haustið unnum við Gísla J. Johnsen bikarinn, en alls urðu leikirnir 6 á árinu.“

Fljótlega kom það upp í samtölum okkar Halla Steina við Halldór frænda í Henson að gaman væri að gefa fleirum tækifæri til að eignast þennan glæsilega hannaða afmælisbúning í tilefni af aldar afmælinu. Þeir sem vilja eignast búninginn geta pantað beint frá Henson í gegnum netfangið [email protected]

Hver treyja kostar 7.500 krónur.

Að lokum læt ég hér eina mynd fylgja með af ungu kynslóðinni í Tý frá 1967.

Þegar þessi mynd var tekin, þá var ég í flunkunýjum þverröndóttum grænum og hvítum uppháum ullarsokkum sem mamma hafði prjónað á mig  með teygju undir ilina. Mér þótti þessir sokkar svakalega flottir, en mikið rosalega klæjaði undan þeim og ég átti bágt með að sitja kyrr á meðan á þessari myndartöku stóð. Sé það núna að mamma hlýtur að hafa verið á undan sinni samtíð, því svona sokkar slógu ekki í gegn fyrr en uppúr 1980 eða svo.

Afmæliskveðjur  Hörður Baldvinsson